Kraumur tónlistarsjóður hefur úthlutað 7.3 milljónum til íslenskra listamanna og verkefna sem stendur til að framkvæma árið 2014. Um er að ræða fjölbreytt verkefni listafólks sem mun leggja land undir fót, kynna sig og koma fram bæði hér á Íslandi og erlendis. Rúmlega sjö milljónum króna er varið til 13 verkefna á sviði innrásar og útrásar íslenskrar tónlistar en einnig er stuðlað að námskeiðum og fræðslu. Hæstu styrkina hljóta að þessu sinni hljómsveitin Mono Town, og sameiginleg tónleikaferð Sólstafa og Kontinuum, en hvort verkefnið um sig hlýtur eina milljón króna í styrk.
ÚTHLUTUN 2014
PLÖTUGERÐ ÚTRÁS OG KYNNING – stuðningur og samstarf við listamenn og hljómsveitir á sviði plötuútgáfu, kynningar og markaðssetningar: | ||
Mono Town | Kynning og markaðssetning | 1.000.000 kr. |
Ólafur Björn Ólafsson | Kynning og útgáfutónleikar | 350.000 kr. |
Gyða Valtýsdóttir | Kynning á nýrri plötu | 300.000 kr. |
ÚTRÁS – stuðningur & samstarf við listamenn og hljómsveitir : | ||
Sólstafir og Kontinuum | Tónleikaferð um Evrópu | 1.000.000 kr. |
Nordic Affect | Tónleikahátíðir og kynning | 800.000 kr. |
Agent Fresco | Evróputúr 2014 | 700.000 kr. |
Ragnheiður Gröndal | Tónleikaferðir um Evrópu | 500.000 kr. |
Rökkurró | Útrás vegna þriðju plötu | 350.000 kr. |
INNRÁS – stuðningur & samstarf við listamenn og tónlistarhátíðir: | ||
Grísalappalísa og | ||
DJ Flugvél og Geimskip | Íslandstúrinn 2014 | 500.000 kr. |
Cell 7 ásamt hljómsveit | Tónleikaferð um landið | 500.000 kr. |
Aldrei Fór Ég Suður 2014 | Tónlistarhátíð á Ísafirði | 500.000 kr. |
Möller um landið | Kynning á íslenskri raftónlist | 500.000 kr. |
Eistnaflug 2014 | Fjölmiðlakynning og námskeið | 300.000 kr. |
ÖNNUR VERKEFNI KRAUMS 2014- Kraumslistinn í desember og Hljóðverssmiðjur Kraums í vor sem fela í sér fræðslu og handleiðslu í samstarfi við Músíktilraunir og þær hljómsveitir sem skipa fyrstu þrjú sætin í ár. Stefnan er að úthluta á ný seinna á árinu en tilkynnt verður um nýtt umsóknarferli með vorinu.
Frá stofnun Kraums hefur Aurora velgerðarsjóður lagt sjóðnum til 140 milljónir. Stjórn Auroru velgerðasjóðs hefur síðan 2007 úthlutað til verkefna á sviði mannúðar, mennta og menningar hérlendis og í Afríkuríkjunum Síerra Leóne og Mósambík svo fátt eitt sé nefnt.