Hljómsveitin Mammút hefur verið að gera frábæra hluti með plötu sinni, Komdu til mín svarta systir. Hljómsveitin hefur verið á ferð og flugi til að fylgja breiðskífunni eftir og mun hún gera víðreist næstu daga þar sem hún mun koma fram á Bræðslunni, Þjóðhátíð í Eyjum, Edrúhátíðinni á Hellu og Mýrarboltanum á Ísafirði.
Nú hefur sveitin gefið út myndband við lagið, Þau svæfa. Myndbandið er gert af söngkonu sveitarinnar, Katrínu Mogensen og Sunnevu Ásu Weisshappel.