Þungarokkshljómsveitin Momentum hefur samið við plötuútgáfufélagið Dark Essence Records um útgáfu næstu plötu þeirra, The Freak Is Alive”. Þeir Hlaf (söngur, bass), Kristján Guðmundsson (Trommur), Ingvar Sæmundsson (Gítar, söngur) og Sigurður Jónsson (Gítar, söngur) skipa sveitina en hún var stofnuð árið 2003. Við samgleðjumst með þeim drengjum með þennan áfanga en titil lagið The Freak Is Alive má hlusta á hér fyrir neðan.