Hljómsveitin Kaleo er að vinna að nýju hljómplötu sem er væntanleg á næsta ári. Kaleo hefur sent frá sér myndband við lagið All The Pretty Girls sem er fyrsta smáskífulagið á tilvonandi plötu. Myndbandið er unnið af teyminu Eyk sem hefur einmitt séð um fyrri myndbönd Kaleo en myndbandið var tekið upp á Egilsstöðum og nágrenni og í Mývatnssveit. Í júlí mánuði fékk Kaleo afhenta gullplötu fyrir sína fyrstu plötu sem ber einfaldlega nafnið Kaleo. Platan kom út í lok nóvember og sló heldur betur í gegn.