From the blog

From the blog

Reykjavíkurdætur með nýtt lag tileinkuðu Druslugöngunni

Drusla 640x400

Rapphópurinn Reykjavíkurdætur lögðu nýafstaðinni Druslugöngu lið með nýju lagi sem ber heitið D.R.U.S.L.A. Halldór Eldjárn ásamt Högna Egilssyni sjá um taktinn en Salka Valdsóttir, Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir, Steiney Skúladóttir og Þuríður Blær Jóhannsdóttir rappa og Ásdís María Viðarsdóttir syngur í laginu. Myndbandið var gert af Aranari Huga Birkissyni.

Tilgangur Druslugöngunnar er að skila skömmini heim til gerenda og var gangan sú fjölmennasta hingað til í ár.