ROKKJÖTNAR 2.1 verða haldnir í Vodafonehöllinni þann 27.09.14. Húsið opnar klukkan 15.00 en hátíðin hefst síðan stundvíslega klukkan 15.45 og stendur til miðnættis. Aldurstakmark er ekkert, en yngri en 18 ára skulu hafa með sér forráðamann/konu. Fram koma:
• Skálmöld
• DIMMA
• SÓLSTAFIR
• Brain Police
• Beneath
• Strigaskór nr. 42
• In Memoriam
• Melrakkar
Miðasala hefst á www.midi.is á hádegi þriðjudaginn 29. júlí og er miðaverð kr. 5.990.