Hljómsveitin Samaris frumsýndi nýtt tónlistarmyndband í dag við lagið Brennur Stjarna en Marteinn Þórsson leikstýrði. Ólafur Darri Ólafsson og María Birta Bjarnadóttir fara með aðalhlutverkin í myndbandinu. Samaris gerðu einmitt tónlistana fyrir myndina XL sem Marteinn gerði en Ólafur Darri og María Birta fóru einnig með aðalhlutverk í XL. Brennur Stjarna er lokalagið í myndinni XL þannig að þessi föngulegi hópur er ekki óvön að vinna saman.
Myndbandið má sjá hér.