Sögusagnir um að Schoolboy Q muni ekki koma fram á Secret Solstice hátíðinni hafa farið nokkuð hátt frá því að fregnir bárust að Schoolboy Q hafi verið handtekinn eftir skotárás sem varð eftir tónleika Schoolboy Q og NAS í bandaríkjunum í fyrradag. Þrír voru skotnir á bílaplani eftir tónleikana og birtu erlendir miðlar fréttir þess efnis að lögreglan hefði Schoolboy Q í haldi. Hatid.is getur staðfest að þessar sögusagnir eru ekki á rökum reistar og Schoolboy Q hefur tekið af allan vafa þar sem eftirfarandi Twitter færsla barst frá kappanum:
“and IM STILL GOING TO ICELAND 2MORROW, & NEW YORK WEDNESDAY”
Schoolboy Q mun koma fram á Valhöll sviði Secret Solstice, Sunnudagskvöldið kl: 22:40
Tryggðu þér miða með því að smella HÉR