Tónlistarhátíðin Secret Solstice fer fram þessa helgi í Laugardalnum. Dagskráin hófst í dag kl:12 og endar á Sunnudagskvöldið. Mikið er um að vera á þeim fimm sviðum sem í boði eru með rjómanum af íslensku tónlistarsenunni ásamt vel völdum erlendum listamönnum. Hátíð.is er á svæðinu og mun reglulega birta myndir og fréttir yfir hátíðina. Enn er hægt að nálgast miða HÉR