Á föstudaginn mun ÚLFUR ÚLFUR frumsýna myndband á Kex Hostel við nýju breiðskífu þeirra, Tarantúlur, partýið hefst klukkan 20:30
Mikil eftirvænting er fyrir frumsýningunni og verður slegið upp veisla í innri sal hostelsins þar sem myndbandið verður frumsýnt. Að myndbandinu loknu tekur DJ Logi Petro við og heldur stuðinu áfram.
Þess má geta að Magnús Leifsson leikstýrði myndbandinu en hann hefur meðal annars gert myndbönd fyrir Hjaltalín, FM Belfast, Retro Stefson, MÚM og Ólaf Arnalds.