From the blog

From the blog

Ultra Mega Technobandið Stefán hættir í bili

10302060_482930268502564_8321268353604782140_n

 

Þau miður góðu fréttir voru að berast að Ultra Mega Technobandið Stefán (UMTBS) hafa ákveðið að hætta í óákveðinn tíma. UMTBS munu halda lokatónleika á laugardaginn á Mýrarboltanum á Ísafirði þar sem Agent Fresco, Emmsjé Gauti og Erpur og Cesar A munu einnig stíga á svið það kvöld.

UMTBS hafa verið starfandi frá árinu 2006 eða allt frá því að þeir lentu í öðru sæti Músíktilrauna það árið. Hljómsveitin gaf út tvær breiðskífur, sú fyrri Circus var gefin út 2008 og seinni sen bar einfaldlega nafnð ef nafn skal kalla ! árið 2013. Drengirnir hafa verið rómaðir fyrir hressilega sviðsframkomu og má með sanni segja að sjónarsviptir verða af þessari stórgóðu hljómsveit.