Miðar í svæði B á tónleika Neil Young & Crazy Horse í Laugardalshöll þann 7. júlí eru nú uppseldir. Enn eru til miðar í svæði A en þeir sem eiga miða í svæði A geta annaðhvort staðið nær sviðinu eða setið í stúku (ónúmeruð sæti).
Neil Young & Crazy Horse munu koma fram í fyrsta sinn á Íslandi í nýju Laugardalshöllinni þann 7. júlí. Tónleikarnir fara fram á mánudeginum fyrir ATP Iceland-hátíðina sem fer fram á Ásbrú 10.-12. júlí en þar koma fram Portishead, Interpol, Kurt Vile, Devendra Banhart, Swans ásamt mörgum öðrum hljómsveitum.
Miðasala er í fullum gangi á midi.is. Miðaverð í svæði A er 17.900 krónur en einnig eru í boði miðar sem eru vikupassar sem gilda á Neil Young & Crazy Horse tónleikana í Laugardalshöllinni 7. júlí og ATP Iceland-hátíðina sem fer fram á Ásbrú dagana 10.-12. júlí og þá viðburði sem fara fram dagana á milli sem ATP sviptir hulunni af á næstu dögum. Þeir sem kaupa vikupassa fá góðan afslátt en miðaverð á vikupössum er 31.900 kr.
ATP Iceland
Kynningarmyndband
facebook.com/atpiceland
twitter.com/atpiceland
instagram.com/atpiceland