From the blog

From the blog

Útvarpsþátturinn Luftgítar heldur ókeypis útitónleika á Bar 11

dn_fre_Zlatko_Buric_749168a

Á laugardaginn verður síðasti þáttur Luftgítar en umsjónarmaður þáttarins er Matthías Már Magnússon og hefur hann verið á dagskrá Rásar 2. Í tilefni þessa verður útitónleikar haldnir á portinu á Bar 11 og byrja þeir klukkan 17:00 og standa til 22:00 en ókeypis er inn á þá. Þeir sem fram koma eru Vio, Johnny & The Rest, Morðingjarnir, Kimono, Agent Fresco og Kaleo.

Það verða sjónarsviptir af þessum stórgóða útvarpsþætti en kíkjum á myndband með tvöföldum heimsmeistara í luftgíar Japananum Ochi “Dainoji” Yosuke. Svo er bara að taka undir með luftgítarinn að vopni á Bar 11 á laugardaginn.