Events

Events

All Tomorrow‘s Parties

  • All tomorrows parties

Það er skipuleggjendum ATP á Íslandi mikill heiður að tilkynna að hljómsveitirnar PORTISHEAD og INTERPOL verða stærstu hljómsveitirnar á ATP-hátíðinni á Ásbrú í júlí en hvorug hljómsveitin hefur komið fram áður á Íslandi. Barry Hogan, stofnandi ATP segir: „Hljómsveitin Portishead á farsælan feril að baki og við höfum átt mjög náið samband við sveitina í gegnum tíðina. Portishead var listrænn stjórnandi á ATP árið 2007 en þá hafði sveitin verið í löngu fríi og ekki spilað á tónleikum í mörg ár. Þá var hljómsveitin listrænn stjórnandi á fyrstu I’ll Be Your Mirror-tónleikaröðinni okkar. Hljómsveitin Interpol, sem er í miklu uppáhaldi hjá okkur hjá ATP, hafa hins vegar aldrei komið fram á viðburðunum okkar og það er því mjög spennandi að tilkynna að þeir spila í fyrsta skiptið á ATP þegar ATP Iceland verður haldið í annað sinn í júlí á Ásbrú.”

Portishead verður stærsta nafnið föstudaginn 11.júlí og Interpol stærsta nafnið laugardaginn 12.júlí. Hljómsveitirnar Mammút, For a minor Reflection, Samaris, Sóley og Low Roar verða einnig á meðal þeirra hljómsveita og tónlistarmanna sem koma fram á hátíðinni. ATP Iceland hertekur Ísland í sumar með fjölda viðburða frá 7.júlí þar til hátíðin hefst 10. júlí. Dagana á undan hátíðinni verða haldnir tónleikar, ATP Recordings-kvöld, listsýningar, kvikmyndasýningar og fleira.

 

Hátíðin fer fram dagana 10.-12. júlí 2014.

Miðasala fer fram á midi.is, í verslunum Brim og atpfestival.com. Þriggja daga hátíðarpassar kosta 18.500 kr. Dagspassar kosta 12.900 kr. Einnig er hægt að kaupa hátíðarpassa og dagspassa með rútuferðum frá BSÍ. Nánari upplýsingar á midi.is. Áætlað er að tónlistardagskrá hátíðarinnar standi frá 19:00-02:00 alla hátíðardagana og munu í heildina um 25 hljómsveitir koma fram.

ATP verður haldin á Ásbrú, fyrrum varnarliðssvæðinu, sem á sér sögu sem rekur aftur til ársins 1941 en bandaríski herinn yfirgaf svæðið árið 2006. Svæðið er staðsett í fimm mínútna aksturfjarlægð frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Reykjanesbæ, um korter frá Bláa Lóninu og hálftíma frá höfuðborgarsvæðinu. Á hátíðarsvæðinu verða tvö svið sem bæði eru innandyra, auk annars konar skipulagðrar dagskrár sem felur meðal annars í sér kvikmyndasýningar, Popppunkt, fótboltamót þar sem hljómsveitir etja kappi við gesti hátíðarinnar o.fl.


Finna miða