Events

Events

Edrúhátíð SÁÁ

Edrúhátíð SÁÁ er haldin um verslunarmannahelgina á hverju ári.  Hátíðin er fyrir alla þá sem vilja skemmta sér án áfengis.  Edrúhátíðin er fjölskylduhátíð þar sem boðið er upp á tónleika, barnaleiksýningar, íþróttakeppni, listasmiðju fyrir börn, 12 spora fundi, yoga, nudd, zúmbadans, gönguferðir, kvöldvöku, varðeld, söngkeppni og margt fleira.  Boðið er upp á tjaldstæði þar sem gestir geta tjaldað og gist.  Öll aðstaða er til fyrirmyndar.  Hægt er að kaupa mat og drykk á góðu verði í matsal Laugalandsskóla sem er við tjaldstæðið.  Íþróttahúsið við skólann nýtist líka vel í allskonar viðburðum.  Sundlaugin er opin alla daga. Hátíðin er aðeins fyrir þá sem ætla ekki að neyta áfengis eða annarra fíkniefna þessa helgi.