Events

Events

Hríseyjarhátíð

Hríseyjarhátíð er hátíð fyrir alla fjölskylduna. Fyrsta hátíðin var haldin árið 1997 og hefur hún verið árlegur viðburður síðan. Hátíðin hefst á föstudegi og þá er boðið upp á óvissuferðir fyrir börn, unglinga og fullorðna. Aðaldagskráin er á laugardeginum og þá er í boði dagskrá frá hádegi og fram á kvöld, fastir liðir eins og fjöruferð með Skralla trúð, leiktæki, dráttarvélaferðir, tónlist, smakk á afurðum Hríseyjar, ratleikur og fl. að venju endar hátíðin á kvöldvöku á sviðinu og síðan varðeldi og brekkusöng. Hátíðin er fyrst og fremst fjölskylduhátíð þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Í Hrísey er öll almenn þjónusta til staðar s.s verslun, veitingahús, sundlaug, tjaldsvæði og gisting. Til Hríseyjar gengur ferjan Sævar allt upp í níu ferðir á dag og er aðeins 15 mínútna sigling frá Árskógssandi sem er 35 kílómetra frá Akureyri. Nánari upplýsingar um Hrísey, ferjuáætlun og þjónustu má nálgast á www.hrisey.is