Events

Events

Vökudagar

Á Akranesi er mannlíf í miklum blóma. Íbúar á Akranesi hafa aldrei verið fleiri og bærinn stækkar ört. Í blómlegum bæ er mikilvægt að menningarlíf sé öflugt og fjölskrúðugt þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Í byrjun nóvember ár hvert er boðið til menningarhátíðarinnar Vökudaga en tilgangur hennar er ekki síst að efla menningarlífið í bænum og lífga um leið upp á skammdegið. Umfang hátíðarinnar hefur aukist ár frá ári og hefur hún notið vaxandi vinsælda meðal bæjarbúa; reyndar hefur hróður hennar borist langt út fyrir bæjarmörkin enda sækir fólk úr nágrannasveitarfélögum og jafnvel víðar að þessa skemmtilegu hátíð. Dagskrá hennar og viðburðir hafa sömuleiðis orðið viðameiri með hverju árinu og einnig hefur þátttaka fyrirtækja og stofnana aukist jafnt og þétt. Á hverju ári er til dæmis hægt að velja úr fjölda tónleika, listsýninga og annarra viðburða. Þannig hafa Vökudagar öðlast sinn fasta sess í bæjarlífinu – Vökudagar eru komnir til að vera.