From the blog

From the blog

ATP – Kynna fleiri hljómsveitir

Capture

GODSPEED YOU! BLACK EMPEROR, MUDHONEY, RUN THE JEWELS, DEAFHEAVEN
og fleiri á ATP 2015

ATP kynnir í dag fleiri hljómsveitir sem koma fram á ATP sem fram fer á Ásbrú í þriðja sinn dagana 2.-4. júlí.

Áður var búið að tilkynna að hljómsveitin Belle and Sebastian muni koma fram á ATP-hátíðinni en í dag hafa bæst við fleiri hljómsveitir á hátíðina, þar á meðal hljómsveitin Godspeed You! Black Emperor sem eru miklir góðkunningjar ATP en sveitin spilaði síðast á Íslandi árið 2002. Þá mun hip-hop hljómsveitin Run The Jewels, sem á að margra mati eina bestu plötu ársins, koma fram á hátíðinni. Einnig mun Seattle-sveitin Mudhoney, þungarokkssveitin Deafheaven, hin afar melódíska Chelsea Wolfe koma fram á hátíðinni. Auk þeirra hafa  einnig bæst við hljómsveitirnar Iceage, Loop, The Field, White Hills, Ghostigital, Vision Fortune, Younghusband og Tall Firs.

Í tilkynningu frá ATP segir Barry Hogan, stofnandi ATP: “Við erum mjög spennt fyrir þriðju ATP hátíðinni á Íslandi og það hefur verið gaman að fylgjast með hátíðinni stækka á milli ára. Næsta hátíð mun skarta þekktum sveitum á borð við Loop og Godspeed en einnig nýrri hljómsveitum á borð við Younghusband og Run the Jewels. Við erum hvergi nærri hætt. Það er miklu meira á leiðinni og eins og staðan er núna lítur út fyrir að þriðja hátíðin verði sú stærsta hingað til”.

ATP fer fram á Ásbrú í Reykjanesbæ dagana 2.-4. júlí. Á hátíðinni verða tvö tónleikasvið, kvikmyndahús sem sýnir myndir sem valdar eru af ATP og hljómsveitunum sem koma fram, plötusnúðar, popppunktur, bókarbingó, fótboltamót þar sem gestir keppa við hljómsveitirnar og margt fleira. 

Myndband frá ATP 2014: 


Upplýsingar um miðasölu og nánari upplýsingar um viðburðinn má finna á www.atpiceland.is.

Fylgist með ATP Iceland á samfélagsmiðlum:
facebook.com/atpiceland
twitter.com/atpiceland
instagram.com/atpiceland