From the blog

From the blog

Dagskrá Mýrarboltans …og spáin er góð

dagskra_poster2b_webpage

Þeir sem víla ekki fyrir sér að vera drullugir upp fyrir haus eiga von á góðu á Ísafirði þar sem Mýrarboltinn margrómaði verður haldinn um Verslunarmannahelgina. Veðurspáin verður að teljast ásættanleg, helst þurr og sú gula lætur sjá sig við og við þó spáð sé heldur svölu veðri, það á þó ekki að koma að sök þar sem keppendur munu hamast í drullunni og í pásum geta þeir gætt sér á yljandi Irish Coffee ef svo ber undir.

Dagskráin er þétt og skemmtileg þannig að gestir Mýrarboltans eiga von á góðu.
Fimmtudagur:
23:00 – DJ Matti & DJ Orri á Húsinu
Föstudagur:
14:00 – Skráning hefst í skráningarhöllinni í Edinborg
23:00 – Úlfur Úlfur í Edinborg
23:00 – DJ Matti & DJ Orri á Húsinu
23:00 – DJ í Krúsinni

Laugardagur:
10:00 – Leikir hefjast
18:00 – Leikjum lýkur
00:00 – Kiriyama Family á Húsinu
00:00 – Erpur og Sesar A, Emmsjé Gauti, Agent Fresco
og UMTBS í Íþróttahúsinu Torfnesi
00:00 – DJ í Edinborg
23:00 – DJ í Krúsinni

Sunnudagur:
10:00 – Leikir hefjast
16:00 – Leikjum lýkur
20:00 – Dagskrá á brennu hefst
22:00 – Verðlaunaafhending
00:00 – Playmo í Edinborg
00:00 – Mammút, Jón Jónsson, Frikki Dór
og Kiriyama Family í Íþróttahúsinu Torfnesi
23:00 – DJ í Krúsinni

Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar

dagskra_poster2b_webpage