From the blog

From the blog

Dregið úr Neil Young leiknum

mynd frá ATP facebook

Það er greinilega mikill spenningur fyrir Neil Young tónleikunum sem fram fara í kvöld í Laugardalshöllinni. Uppselt er á svæði B en síðustu miðarnir á svæði A eru að rjúka út þessa stundina og því fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða. Til að versla miða smelltu HÉR

Þau gleðitíðindi hafa borist að sjálfur Mugison mun hita upp tónleikagesti í kvöld en tónleikarnir eru partur af tónlistarhátíðinni All Tomorrows Parties sem hefst formlega á fimmtudag. Enn eru til einhverjir miðar á þessa frábæru hátíð sem tónlistarunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Tryggðu þér miða með því að smella HÉR

Hatid.is er búin að vera með Neil Young miðaleik í gangi undanfarna daga og er nú búið að draga út sigurvegara. Mörg hundruð manns létu reyna á heppni sína en það var hún Kristín Erna sem tryggði sér 2 miða á herlegheitin í kvöld og óskum við henni til hamingju og þökkum öllum fyrir þátttökuna. Fylgist með síðunni því fleiri miðaleikir eru væntanlegir.