From the blog

From the blog

Johnny Winter er látinn

johnnywintersolo20122_638

Johnny Winter, blúsgoðsögn með meiru, er látinn 70 ára að aldri. Lést hann á hótel herbergi sínu í Zurich en vefurinn www.bladdermouth.net greindi frá, hafði hann verið heilsulítill síðustu misseri. Ferill Winter spannar heila fjóra áratugi og var hann virkur í tónlistageiranum til dauðadags en hann var að vinna að plötu sem átti að bera nafnið Step Black og ráðgert var að gefa hana út 2.september á þessu ári. Winter spilaði með fjöldan öllum af þekktum tónlistamönnum eins og  Eric Clapton, Billy Gibbons, Muddy Waters, Leslie West, Joe Bonnamssa, Ben Harper, Joe Perry, Brian Setzer, John Lee Hooker og Jimmy Page. Hann var tekinn inn í frægðarhöll blústónlistarmanna árið 2003.

 

Hérna er skemmtileg upptaka frá 1970 sem yljar hverju blús elskandi fólki um hjartarætur.