Events

Events

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík

RIFF er einhver stærsti og fjölbreyttasti menningarviðburðurinn á Íslandi. Í ellefu daga á hverju hausti flykkjast Íslendingar í bíó til að sjá það besta og ferskasta í alþjóðlegri kvikmyndagerð. Enn fremur býðst gestum að spjalla við leikstjóra um verk sín, sækja málþing og fyrirlestra, tónleika og ljósmyndasýningar, og að sjá kvikmyndir við óhefðbundin skilyrði – t.d. í sundi eða í stofunni hjá Frikka Þór!Dagskráin setur unga kvikmyndagerðarmenn og framsækna kvikmyndagerð á oddinn. Aðalverðlaun hátíðarinnar, Gyllti lundinn, eru til dæmis tileinkuð kvikmyndagerðarmanni fyrir sína fyrstu eða aðra mynd.

Hjá RIFF trúum við því að bíó geti breytt heiminum. Heimildarmyndir skipa sífellt stærri sess í dagskrá hátíðarinnar og leiknar myndir sem láta sig sérstaklega varða mannréttindi, lífsgæði og umhverfismál fá ríkulegt pláss.

RIFF er ekki síður mikilvægur vettvangur fyrir íslenska kvikmyndagerðarmenn til að kynna verk sín fyrir umheiminum. Fjöldi erlendra blaðamanna og bransafólks sækir hátíðina ár hvert og áhugi þeirra á því að kynna sér íslenskar kvikmyndir leynir sér ekki. Hátíðin reynir að sýna framleiðslu liðins árs, frumsýna nýjustu myndirnar og gera íslenskri stuttmyndagerð hátt undir höfði. Besta íslenska stuttmyndin fær verðlaun úr minningarsjóði Thors Vilhjálmssonar en Gullna eggið kemur í hlut bestu stuttmyndarinnar sem tekur þátt í Kvikmyndasmiðju RIFF (Talent lab).

Næsta hátíð verður sú ellefta í röðinni og mun hún standa frá 25.september – 5. október 2014. Fylgist með dagskránni hér á riff.is.


Finna miða