Events

Events

Eistnaflug



Tónlistarhátíðin Eistnaflug fagnar 10 ára afmæli sínu næsta sumar. Afmælishátíðin verður haldin dagana 10.-12. júlí næstkomandi í Egilsbúð á Neskaupstað.

Miðvikudaginn 9. júlí verður upphitun fyrir sjálfa hátíðina í Egilsbúð. Þar koma fram Skálmöld, Brain Police og Cevered Crotch á tónleikum fyrir alla aldurshópa.

Markmið Eistnaflugs er að bjóða ferska og fjölbreytta dagskrá rokktónlistar sem spannar allt frá indírokki yfir í þungan metal. Áhersla er lögð á að kynna það besta í íslensku rokki hverju sinni í bland við áhugaverðar erlendar sveitir.

Þær íslenskar hljómsveitir sem staðfest hafa komu sína á hátíðina næsta sumar eru: HAM, Sólstafir, Skálmöld, Brain Police, The Vintage Caravan, Severed Crotch, Momentum, Jónas Sig og ritvélar framtíðarinnar, Dimma, Strigaskór nr.42, Kontinuum, Gone Postal, Malignant Mist, Ophidian I, Saktmóðigur og Skelkur í bringu.

Fremst í flokki erlendra hljómsveita er goðsagnakennda dauðarokkssveitin At the Gates frá Svíðþjóð, þá mun Doom/Sludge-sveitin  Zatokrev frá Sviss og Thrashmálmssveitin Havok frá Bandaríkjunum einnig mæta á Eistnaflug 2014.

Hliðardagskráin Mayhemisphere verður á sínum stað með andlitsmálun, tónleika, gjörninga og listasýningar.

Eistnaflug leggur gríðarlega mikla áherslu á það að allir hegði sér vel og þess vegna er bannað að vera fáviti á Eistnaflugi og ekkert helvítis rugl!


Finna miða