Events

Events

Sjóarinn síkáti

Sjómanna- og fjölskylduhátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík hefur fest sig í sessi sem ein skemmtilegasta og fjölbreyttasta bæjarhátíð landsins haldin um Sjómannadagshelgina, 30. maí – 1. júní 2014, til heiðurs íslenska sjómanninum og fjölskyldu hans.  Hátíðin hefur vaxið með hverju árinu, þar er fjölbreytt dagskrá alla helgina en mikið er lagt upp úr vandaðri barnadagskrá. Líkt og undanfarin þrjú ár verður bænum skipt upp í fjögur litahverfi.